HA HA,já já nú er ég búin að taka stjórnina á heimasíðunni
líka,akkúrat ég Hafdís já,þetta er ég búin að troða mér inn á
heimasíðuna hans Andrésar míns eins og allsstaðar annars staðar,en
já ég ætla að fá að blogga hér líka því ég nenni ekki að gera mína
eigin síðu,enda óþarfi þar sem við erum nú orðin fjölskylda,en það
er nú mikið framundan hjá okkur næstu vikur,en núna er litli
prinsinn minn hjá pabba sínum og verður þar til miðvikudags,en þá
næ ég í hann á leikskólann og verður svo brunað af stað suður,en
ætlum við að gista hjá foreldrum mínum til fimmtudags en það er
nauðsynlegat að prinsinn minn fái nú að eyða smá tíma með ömmu
sinni og afa sínum líka,svo á fimmtudag förum við til Sandgerðis og
gistum þar hjá Hafdísi og Sigtryggi sem er frændfólk hans
Andrésar,svo um klukkan fimm aðfaranótt föstudags verður lagt af
stað út á flugvöll og þá fer sko gamanið að byrja,þetta er 3
klukkutíma flug og svo 2 tíma ferð með lest,spennan á
heimilinu er orðin gífurleg,og er prinsinn alveg að springa úr
spenningi,en er þetta hans fyrsta utanlandsferð,úti verður svo
verslað að sjálfsögðu,en einnig verður þónokkrum tíma og ef ekki
mestum tíma eytt í að skemmta börnunum,auk okkar litlu
fjölskyldunnar,fara líka tengdaforeldrar mínir og mágkonur tvær,en
er ég viss um að þetta verður yndislega gaman allt saman..
Heim verður svo snúið laugardaginn 3 júní og þá mun lífið taka
sinn vanagang í sirka 3 vikur en þá förum við litla fjölskyldan í
sumarbústað í Munaðarnesi í viku eða föstudaginn 23 júní,til stóð
að Svandís mágkona mín kæmi með okkur en því
MIÐUR fékk hún vinnu,já já sjálfselskan mín
er svo mikil,en mig langaði svo að hafa hana með í bústaðinn,en úr
því verður víst ekki breytt
.........nei nei ég er nú bara að
grínast,auðvitað er mjög gott að hún fékk vinnu,en ég hefði nú samt
gjarnan viljað hafa hana með,en maður fær víst ekki alltaf það sem
maður vill...En það verður nú samt gaman hjá okkur,kannski getum
við boðið Ólínu yngri systir hans með okkur ef hún verður ekki
komin með sumarvinnu,en það kemur nú bara allt í ljós´..
Einnig er á áætlun hjá okkur að fara til Þórshafnar á kátum
dögum,en þeir verða um miðjan júlí,við segjum ykkur meira frá því
seinna,en nú er þetta komið hjá mér í bili,svo ég kveð með þeim
orðum,
Kveðja Hafdís